innviðir og þjóðaröryggi.
Virðulegur forseti. Ég þarf aðeins að blanda mér í þessa umræðu, sérstaklega eftir orð hv. þm. Halldóru Mogensen um það að kalla eftir upplýsingum. Munurinn á því er að ef hv. þm. Halldóra Mogensen er með fyrirspurn til ráðherra er hún undirskrifuð af forseta, svo fer sú fyrirspurn inni í ráðuneyti og henni er svarað þar. Þegar við erum að tala um skýrslu er skýrslubeiðni frá Alþingi. Við í þessum sal eigum að greiða atkvæði um það eins og krafa verður gerð til okkar á eftir. Það sem ég vakti máls á í ákveðinni umræðu er að stundum eru greinargerðir skýrslubeiðna með þeim hætti að það er erfitt að skrifa upp á þær. Ég hef talað fyrir því að við ættum að fá tækifæri til að ræða skýrslubeiðni frekar en að hún fari beint í atkvæðagreiðslu. Þetta eru í rauninni einu málin á þingi sem koma inn og okkur þingmönnum er gert að greiða atkvæði um næsta dag án þess að hafa tækifæri til að ræða þau eða melta og gera athugasemdir við það sem þar stendur eða stendur í greinargerð með skýrslubeiðninni. Þetta hef ég lagt áherslu á að mér finnist ástæða til að ræða frekar og snýst á engan hátt um að stoppa einhverja upplýsingagjöf eða leggjast gegn (Forseti hringir.) slíku.