innviðir og þjóðaröryggi.
Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp til að lýsa yfir stuðningi við það að hleypa í gegn þessari skýrslubeiðni. Ég vara við því hins vegar að við séum að breyta þingsköpum úr ræðustóli. Ég hvet eindregið þá sem eru að fara yfir þingskapalögin að skoða þetta en ekki að koma hingað upp og fara að ritskoða greinargerðina. Ég skoðaði greinargerðina með þessari skýrslubeiðni. Ég er prinsipíelt ósammála því að það eigi að skerða sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga. En gott og vel, þetta er skoðun þingmanna Sjálfstæðisflokksins, þeir leggja fram þessa skýrslubeiðni samkvæmt hugsjónum sínum og vilja fá ákveðnar upplýsingar. Um það snýst málið, að fá hingað upplýsingar sem við getum síðan tekist á um, rætt og skoðað hvernig hægt sé að gera betur í viðkomandi málum.
Um þetta snýst málið og ég ætla rétt að vona að við ætlum ekki að fara einhverja fjallabaksleið með því að skerða aðhaldshlutverk þingmanna í þingsal, hvort sem það eru stjórnarþingmenn eða stjórnarandstöðuþingmenn. Ég hvet til varfærni við breytingar á skýrslubeiðnum (Forseti hringir.) um leið og ég lýsi yfir stuðningi við það að hleypa þessari skýrslubeiðni í gegn.