150. löggjafarþing — 59. fundur,  17. feb. 2020.

innviðir og þjóðaröryggi.

567. mál
[15:57]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég tek undir orð hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sem ég er hjartanlega sammála sem endranær. Ég styð þessa skýrslubeiðni og það er réttur þingmanna að koma fram með skýrslubeiðnir sem þessar til að kalla eftir frekari upplýsingum, hver sem hinn pólitíski undirtónn kann að vera og hvort sem við erum sammála honum eða ekki. Þetta er mjög fallega búin skýrslubeiðni til að draga fram þörfina á því að það þurfi að taka skipulagsvaldið af sveitarfélögum þegar kemur að Reykjavíkurflugvelli. Þetta er bara tilraun Sjálfstæðismanna til að færa málefni Reykjavíkurflugvallar inn í þingsal. Gott og vel, þá bara getum við tekið þá umræðu. Það eru fullkomlega þeirra réttur.

Mér þykir hins vegar varhugaverð umræða þingmanna Sjálfstæðisflokksins á sama tíma að þeir eigi að hafa einhvern rétt til að ritskoða skýrslubeiðnir annarra, að þeir séu hið endanlega úrskurðarvald um það hvað teljist góðar skýrslur og hvað slæmar til að biðja um. (Forseti hringir.) Það er ekki hlutverk þeirra frekar en annarra þingmanna. Þess vegna styð ég þessa skýrslubeiðni heils hugar, þetta er fullkomlega réttur þingmanna þótt ég sé ekkert endilega sammála hinum pólitísku undirtóni hennar.