150. löggjafarþing — 59. fundur,  17. feb. 2020.

persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.

555. mál
[16:03]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Þetta var að mínu mati til þess að gera lítil breyting en mikilvæg samt þótt ég hefði svo sem ekki mörg orð um hana.

Nú erum við í allsherjar- og menntamálanefnd að fjalla um málið um vernd uppljóstrara. Ég játa það bara hér að ég var ekkert sérstaklega búin að tengja þessi mál saman. Þetta er ágætisáminning um að velta þessu upp núna þegar við erum að taka inn gesti í því máli. Við höfum kannski viljað hafa meðhöndlun uppljóstrara með þeim hætti að þeir séu varðir til þess að þeir geti komið fram með upplýsingar sem við teljum að almenningur eigi rétt á að fá. Ég þakka hv. þingmanni fyrir athugasemdina og við tökum hana til umfjöllunar í nefndinni.