150. löggjafarþing — 59. fundur,  17. feb. 2020.

persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga.

555. mál
[16:04]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Tilgangurinn var að vekja athygli á þessu af því að við erum að vinna mörg mál þessi misserin er varða tjáningarfrelsi, vernd uppljóstrara og þess háttar og brýna fyrir hv. allsherjar- og menntamálanefnd að hafa í huga að passa að persónuverndarfulltrúi njóti sömu réttinda til að greina frá mikilvægum málum er varða almannahagsmuni o.s.frv.