150. löggjafarþing — 60. fundur,  18. feb. 2020.

störf þingsins.

[13:42]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Herra forseti. Það er að bera í bakkafullan lækinn að benda á enn einn nauðsynlegan útgjaldalið hins opinbera en ég ætla samt að gera það. Það eru 250.000 þekktar fornleifar eða fornleifastaðir á Íslandi og búið er að skrá 30%. Sumt af þeim skráningum er úrelt. Það kom fram í svari við fyrirspurn minni frá hæstv. ráðherra og ber þar fyrir sig Minjastofnun að það kosti 2,5 milljarða að ljúka þessum skráningum. Þannig var lengst af að þetta var lögbundin skylda skipulagsvinnu sveitarfélaga að vinna að þessu en það hefur reynst afar erfitt og hefur gengið of hægt. Reglum Minjastofnunar var því breytt í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga þannig að sveitarfélögin skrá fornleifar á framkvæmdarsvæðum og í þéttbýli en ekki annars staðar. Þetta mun því ekki leysa skráningarvandann í bili. Það beinir athyglinni að fornleifum, umhverfismálum, friðlýstum svæðum og þjóðgörðum. Þar vantar auðvitað mikið á skráningu fornminja. Fjárskortur Minjastofnunar er augljós í þessum tilvikum eins og öðrum, þannig að ef fé væri aukið til Minjastofnunar væri hægt að skrá fornminjar hraðar og þar er, herra forseti, ákveðinn opinn gluggi því að samkvæmt þjóðlendulögum skal verja tekjum af þeim í þágu verkefna þar. Nú fæst tæpur milljarður á ári frá Landsvirkjun. Ég legg einfaldlega til að borð sé fyrir báru þar og að hluti þessa fjár verði settur í skráningu fornleifa á þjóðlöndum. Það kostar auðvitað að breyta ríkisfjármálaáætlun og koma þessu inn á fjárlög. Það mun taka mjög langan tíma að ljúka þessu en þarna væri þó hægt að styrkja fyrstu skrefin með því að leita í þennan sjóð. Við getum kallað hann þjóðlendusjóð.