störf þingsins.
Virðulegi forseti. Teikn eru á lofti um að við séum að ganga inn í kólnandi hagkerfi eftir uppsveiflu undanfarinna ára. Líkt og í þeim lægðum sem gengið hafa yfir landið skiptir það mestu máli hvernig við undirbúum okkur, hvernig við mildum áhrif lægðarinnar. Réttar ákvarðanir geta grynnkað niðursveifluna. Ríkisstjórnin hefur nú þegar brugðist við með aukningu útgjalda til innviða og framkvæmda en meira þarf til. Auka þarf verðmætasköpun í landinu.
Ný atvinnugrein sem hefur verið að byggjast upp á undanförnum áratug er fiskeldið. Útflutningsverðmæti fiskeldisins var á síðasta ári um 25 milljarðar kr. og hafði því að verðmæti tvöfaldast milli ára. Talið er að ef framleiðslan fari í það magn sem burðarþolsgetan segir til um verði útflutningsverðmætið nær 65 milljörðum kr. Þá gætum við enn aukið á umsvif og verðmæti fiskeldisins með aukinni fullvinnslu aflans og margfaldað þau störf sem snúa að þessari atvinnugrein líkt og Færeyingum hefur tekist. Fjárfestingar upp á tugi milljarða liggja í greininni og frekari fjárfesting bíður frekara leyfis. Það þarf líka að huga að innviðum. Uppbygging samgangna við þau byggðarlög sem byggja fiskeldi eru forsenda þess að við fullnýtum þessar atvinnugreinar. Samgönguáætlun gerir ráð fyrir að grunnnet samgangna á Vestfjörðum verði komið til nútímans innan fimm ára en við megum ekki stoppa þar heldur þarf að huga enn frekar að viðhaldi og endurgerð vega á milli þéttbýlisstaða. Fiskeldislögin eru skýr, samfélagið tilbúið, nú er lag.
Virðulegi forseti. Með efnahagslægð yfirvofandi verðum við að gefa fiskeldinu gaum. Við verðum að styrkja stofnanir sem sjá um eftirlit og leyfisveitingar þannig að þær geti sinnt starfi sínu fumlaust og af öryggi og við verðum að sjá til þess að leikreglur byggi alltaf á bestu fáanlegu vísindum og rannsóknum.