150. löggjafarþing — 60. fundur,  18. feb. 2020.

neytendalán og aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

582. mál
[16:06]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi sem við flytjum í efnahags- og viðskiptanefnd um breytingu á lögum um neytendalán og lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 163/2019. Það eru lög sem fóru hér í gegnum þingið rétt fyrir jól.

Við leggjum til í 1. gr. frumvarpsins að í stað orðanna „fullgildri rafrænni undirskrift“ í lokamálslið 3. gr. laganna komi: rafrænni undirskrift eða samþykktur af neytanda sem hefur verið auðkenndur rafrænt gagnvart viðskiptakerfi lánveitanda.

Auk þess leggjum við til að gera breytingu á gildistökunni þannig að lögin öðlist gildi 1. júní 2020 í stað 1. mars eins og var í frumvarpinu sem við afgreiddum frá okkur.

Eins og ég sagði þá samþykktum við frumvarpið í desember, nánar tiltekið 17. desember sl., með ákveðnum breytingum sem gerðar voru af meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Ein þessara breytinga laut að kröfum um að lánssamningar um neytendalán skyldu gerðir skriflega og undirritaðir af neytanda með fullgildri rafrænni undirskrift í þeim tilvikum sem lánssamningurinn væri gerður í fjarsölu. Í nefndaráliti meiri hluta nefndarinnar var þessi breytingartillaga skýrð svo:

„Nefndinni hefur verið bent á að smálánafyrirtæki geri litlar sem engar kröfur um auðkenningu þegar sótt er um smálán á vefsíðum fyrirtækjanna. Þannig sé ekki girt fyrir að lán séu tekin í nafni annars en raunverulegs lántaka og dæmi þekkist um slíkt. Til að sporna við þessu leggur meiri hlutinn til að sett verði skilyrði um auðkenningu til að lánssamningur teljist skuldbindandi, annaðhvort með eiginhandarundirskrift eða fullgildri rafrænni undirskrift í skilningi laga um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti, nr. 55/2019, sé lánssamningur gerður í fjarsölu.“

Eftir að við samþykktum þessi lög þá bárust nefndinni ábendingar um að krafan um fullgilda rafræna undirskrift í skilningi þessara laga krefðist umtalsverðra og kostnaðarsamra breytinga á tölvukerfum lánveitenda neytendalána og væri óþarflega íþyngjandi til að ná því markmiði sem að væri stefnt. Það er óhætt að segja, virðulegur forseti, að við í nefndinni höfum fundað svolítið um þetta mál og fengið á fundi til okkar aðila sem þekkja vel til. Ég held að það sé óhætt að segja að við höfum flest verið á þeirri skoðun að í rauninni væri það rafrænt auðkenni sem við værum að krefjast. Við bregðumst því við þessari ábendingu og krefjumst í staðinn fyrir rafræna undirskrift rafrænnar auðkenningar. Við teljum að með þessu móti megi ná fram markmiðum breytinganna án þess að íþyngja lánveitendum meira en nauðsynlegt er. Þá er kannski vert að horfa til þess að hér er um að ræða lög sem eiga við um öll neytendalán, til að mynda yfirdrætti, dreifingu á kreditkortum og eins og margir þekkja er orðið hægt að gera þetta í appi á símanum og þá þarf ekki alltaf fullgilda rafræna undirskrift heldur eru bankarnir með kerfið þannig að við erum auðkennd inn í netbankann eða appið okkar og það á að sjálfsögðu að vera nauðsynlegt. Það eru þó uppi ákveðnar vangaveltur um það hvort gera þurfi kröfu um það í upphafi, þegar viðskiptavinir komi inn, að þá þurfi rafræna undirskrift en við hyggjumst ræða það frekar í nefndinni. Með þessari breytingu viljum við ekki vera of íþyngjandi gagnvart þeim sem eru að þróa tæknilausnir í fjártækni. Ætlunin er að koma í veg fyrir að lögin hefti eðlilega þróun sem kann að verða á tækni og aðferðum við auðkenningu notenda í viðskiptakerfum lánveitenda neytendalána en girða um leið fyrir möguleikann á því að lán sé tekið án auðkenningar lántaka. Með þessu móti verður aðferð auðkenningar á ábyrgð lánveitanda neytendalána sem ber sönnunarbyrði þess að tilhlýðileg auðkenning hafi farið fram komi upp vafatilvik. Neytendastofa getur synjað lánveitanda um skráningu eða fellt skráningu úr gildi telji stofnunin auðkenningarskilyrðinu ekki fullnægt, samanber b-lið 6. gr. laga nr. 163/2019.

Auk framangreinds er í frumvarpinu lagt til að aðlögunartími vegna þessarar breytingar verði framlengdur. Er lagt til að 3. gr. laganna öðlist gildi 1. júní 2020.

Virðulegur forseti. Ég vil líka að fá að lesa hér upp stuttan kafla úr greinargerðinni um réttarvernd neytenda.

„Við vinnu nefndarinnar að þessu frumvarpi komu fram ýmis sjónarmið og ábendingar um afmarkaða þætti vafasamrar smálánastarfsemi og tillögur að lagabreytingum til að sporna við þeim. Af þessu tilefni bendir nefndin á að vinnu stjórnvalda við þennan málaflokk er ekki lokið og hefur nefndin lagt áherslu á að áfram verði fylgst grannt með þróun á þessu sviði. Þá hefur nefndin til sérstakrar skoðunar hvernig vinnu stjórnvalda við reglur um starfsemi og eftirlit með löginnheimtu vindur fram.

Nefndin bendir einnig á að rík réttarvernd fyrir lántakendur neytendalána felst nú þegar í lögum um neytendalán, nr. 33/2013. Ber þar einkum að nefna IV. kafla laganna, 12.–20. gr., um upplýsingaskyldu lánveitanda og réttindi lántaka varðandi lánssamninga. Í 1. mgr. 12. gr. er kveðið á um að lánssamningar skuli skráðir á pappír eða vera á öðrum varanlegum miðli og að allir samningsaðilar skuli fá afrit af lánssamningi. Þá er í 2. mgr. ítarlegt yfirlit yfir atriði sem skulu koma fram á skýran og hnitmiðaðan hátt í lánssamningi.“

Ástæða þess að þetta er tilgreint sérstaklega er að við höfum, m.a. í samtölum okkar við Neytendasamtökin, verið upplýst um að það sé einhver grunur um það að lántakendur fái ekki alltaf upprunalega útgáfu af lánssamningum, þeir eigi það til að breytast. Þarna bendum við á að lagaákvæðin um neytendalán ættu að vera skýr hvað þetta varðar og lánveitendur eiga auðvitað að afhenda lántakanda upphaflega lánssamninginn.

Virðulegur forseti. Mig langar líka að geta þess að eftir samþykkt þessara laga í desember þá barst nefndinni bréf frá aðilum í fjártækni og jafnframt Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Aðilum í fjártækni, nú veit ég ekki hvort ég fer rétt með, Samtök fjártæknifyrirtækja ætla ég að giska á, þótti mörgum hverjum við ganga heldur langt í þessum lögum okkar sem við samþykktum í desember. Það varðaði annars vegar rafrænu undirskriftirnar sem við erum að bregðast við hér en hins vegar það sem var mikið til umræðu varðandi þessa lagasetningu að nefndin breytti í meðförum sínum frumvarpi ráðherra, svokölluðu ÁHK, árlegri hlutfallstölu kostnaðar, úr 50% eins og verið hafði í neytendalögunum niður í 35% hámark. Við það bætast svo stýrivextir Seðlabankans á hverjum tíma. Þetta var umdeilt en ég held að það sé óhætt að segja að flestir gestir nefndarinnar og þær umsagnir sem við fengum um upphaflegt frumvarp ráðherra voru í þá átt að leggja til að tekið væri á þessum þætti eða frekari hömlur settar á vaxtakostnað, þann kostnað sem leggst á lántakendur. Þess ber auðvitað að geta að með ÁHK erum við að tala um kostnað sem fellur á lántakendur og þetta er árleg hlutfallstala kostnaðar þannig að þegar verið er að taka lán eins og þessi, sem eru til skamms tíma, getur þessi prósenta auðvitað orðið töluvert há.

Niðurstaða nefndarinnar eftir ítarlega umræðu um þetta atriði var að gera ekki breytingar á því hér þannig að við höldum okkur við það sem nefndin ákvað í desember og þingið samþykkti, þ.e. í neytendalögum mun áfram standa 35% ÁHK. Nú láðist mér að fletta því upp hvort það hafi ekki almennt verið samþykkt hér af öllum þingheimi. Minni hluti hv. efnahags- og viðskiptanefndar var reyndar með nefndarálit og lagði til að ÁHK færi niður í 20% og þegar, ef mig misminnir ekki, sú tillaga var felld þá held ég að þingheimur hafi almennt sameinast um 35%. Hér er kinkað kolli í hliðarsal. Ég þakka fyrir það. Það er þá rétt með farið. Þannig að þrátt fyrir ábendingar aðila á markaði um að fulllangt sé gengið með því að setja þakið í 35% er niðurstaða nefndarinnar eftir ítarlega umfjöllun að gera ekki breytingar á því. Þá vísa ég bara til þess nefndarálits sem lá frammi frá nefndinni í desember sl. þar sem við fórum yfir þetta og tilgreind voru dæmi erlendis frá sem við miðuðum við í þessum efnum.

Að þessu sögðu vona ég að þetta frumvarp fái góðar viðtökur í hv. efnahags- og viðskiptanefnd sem jafnframt flytur þetta mál. Það hefur reyndar verið gagnrýnt hvort það sé rétt að nefndir flytji mál og vísi því svo til nefndar, en þannig er alla vega hefðin okkar. Hér er sem sagt um ákveðna leiðréttingu að ræða svo að ég flæki það ekki of mikið með þessari umræðu um ÁHK, sem ég efast ekki um að sumir vilji samt engu að síður ræða hér því það er mikilvægt umræðuefni.

Að þessu sögðu langar mig að ítreka það að ég tel að lögin eins og þau líta út í dag eigi ekki að vera of hamlandi á nýsköpun í þessum geira og ég held að það sé mikilvægt og ég held að við hv. þingmenn sem sitjum í efnahags- og viðskiptanefnd séum öll sammála um mikilvægi nýsköpunar og tækniþróunar í þessum geira. Við viljum ekki setja of stífa ramma eða einhvers konar grindverk sem koma í veg fyrir slíka nýsköpun. En við teljum þó jafnframt að nýsköpun eigi að vera með öðrum hætti en að veita örlán á mjög háum vöxtum.