150. löggjafarþing — 60. fundur,  18. feb. 2020.

merking á vörum frá hernumdum svæðum Palestínu.

241. mál
[17:44]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég held að það sé mikilvægt í þessu sambandi að farið sé eftir alþjóðalögum eins og ég nefndi í upphafi ræðu minnar. Þess vegna held ég t.d. að þetta svokallaða friðarsamkomulag Bandaríkjamanna sé andvana fætt. Það hefur auk þess komið fram að Palestínumenn hafa algerlega hafnað því strax í upphafi. Þess má geta að það er mjög stutt síðan að nokkrir valinkunnir starfsmenn á vegum Sameinuðu þjóðanna gáfu út tillögur að hugsanlegri lausn á þessari deilu — þetta hefur ekki verið kynnt formlega, ég frétti af þessu mjög nýlega — sem nokkurs konar svar við tillögum Bandaríkjamanna. Meginþemað í þeim tillögum er að fylgt verði alþjóðalögum. Auðvitað á það að vera megintilgangurinn í friðarumleitunum í þessari erfiðu deilu. Í grundvallaratriðum vil ég svara spurningu hv. þingmanns þannig að það á að gilda nákvæmlega það sama hvað þessa deilu varðar, það á að fara eftir alþjóðalögum. Þessi deila er náttúrlega orðin ákaflega löng og erfið og hefur kostað mörg mannslíf og miklar fórnir og ástandið í t.d. Gasa er afar dapurlegt. Ég hef komið þangað sjálfur og maður fer þaðan með sorg í hjarta. Ég held að það sé afar mikilvægt að við sem Íslendingar (Forseti hringir.) og þjóð sem nýtur trausts meðal beggja þessara þjóða, beggja deiluaðila, beitum okkur í þessu máli. Þótt við (Forseti hringir.) séum lítil þjóð á heimsmælikvarða þá erum við stór þegar kemur að friðarmálum að mínu mati.