150. löggjafarþing — 61. fundur,  20. feb. 2020.

leiðrétting á lögum um almannatryggingar.

[10:55]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Mig langar til að spyrja fjármála- og efnahagsráðherra tveggja spurninga. Sú fyrri er leiðandi og mætti eflaust flokka sem klassíska leiðindapólitík en tilefnið verður æ háværara eftir því sem líður á. Hin spurningin er praktísk, nauðsynlegur hluti af eftirlitshlutverki þingsins og skiptir miklu máli.

Þegar lög nr. 116/2016 voru sett var núverandi fjármálaráðherra einnig fjármálaráðherra. Þetta var breyting á lögum um almannatryggingar en því miður voru gerð mistök, þessi klassísku mistök sem gerast alltaf í þinglokastressinu þegar verið er að reyna að troða málum í gegnum þingið án þess að það fái nægilegan tíma til ígrundunar. Þessi mistök kostuðu skattgreiðendur 4,8 milljarða og leiðréttingin sem var gerð kostaði á bilinu 800–1.500 milljónir, ef marka má tölurnar sem komu fram í Kveik sl. þriðjudag. Miðað við þetta klúður upp á um 6,1 milljarð og að viðbættum mistökum við búsetuskerðingar, Landsréttarmálið og ýmislegt fleira er fyrri spurning mín til ráðherra: Af hverju fara Sjálfstæðismenn svona illa með almannafé?

Seinni spurningin er nauðsynleg því að kostnaðurinn við misheppnuðu leiðréttinguna í þessu máli gæti orðið 1.500 milljónir ef ríkið þarf að greiða öllum 32.000 sem urðu fyrir skerðingu vegna misheppnuðu leiðréttingarinnar dráttarvexti sem voru greiddir málsaðila í dómsmálinu sem þurfti að höfða til að sækja rétt viðkomandi. Seinni spurningin er því hvort ákvörðun um fjárheimild vegna endurgreiðslu á ólögmætum afturvirkum skerðingum hafi komið frá fjármálaráðuneytinu eða fjármálaráðherra. Voru einungis 800 milljónir í vexti en ekki 700 milljónir aukalega í dráttarvexti samkvæmt dómsorði vegna fjárheimildaákvörðunar úr fjármálaráðuneytinu?