150. löggjafarþing — 61. fundur,  20. feb. 2020.

leiðrétting á lögum um almannatryggingar.

[10:57]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Mér er algerlega fyrirmunað að skilja hvernig hv. þingmaður sem hér talaði vill heimfæra upp á fjármálaráðherrann ábyrgð á frumvarpi sem hann ekki lagði fram og var síðan á endanum samþykkt samhljóða á Alþingi. Hann segir síðan: Hér er dæmi um að Sjálfstæðisflokkurinn fer illa með almannafé. Ég verð að segja, virðulegi forseti, mér er algerlega orðið misboðið, að þessi hv. þingmaður sem kemur hér á sokkaleistunum upp í ræðupúlt, í sitt hvorum sokknum ítrekað með pólitískt skítkast í raun og veru, ekkert annað, hefur ekkert annað fram að færa hér í þingsal, skuli ætlast til þess að maður taki svona fyrirspurn alvarlega. Ég get bara ekki gert það.

Varðandi útreikninga vegna þeirrar niðurstöðu að ríkið skuldi tilteknar fjárhæðir þá eru menn að reyna að gæta ýtrustu sanngirni, fara að lögum. Það kunna að vera uppi álitamál um alls konar atriði sem snúa að vaxtaprósentu, upphafsdegi vaxta, dráttarvöxtum á hvaða tímabili o.s.frv. Og já, stundum rís ágreiningur um það og þá er leyst úr því.