efnahagsmál.
Herra forseti. Óveðursský hafa hrannast upp í efnahagslífinu á undanförnum misserum og kannski ekki síst á síðustu mánuðum. Það er að raungerast það sem ríkisstjórnin var ítrekað vöruð við, þ.e. að of bratt væri farið í útgjaldaaukningu á grundvelli óraunhæfra efnahagsforsendna. Ríkisstjórnin hefur hingað til skellt skollaeyrum við þeim aðvörunarorðum en þó virðist það vera að breytast. Hæstv. menntamálaráðherra kom fram með tillögur um viðamiklar efnahagsaðgerðir í viðtali í Morgunblaðinu í morgun, m.a. um verulega innspýtingu í innviðafjárfestingar og sérstaka lækkun á tryggingagjaldi sem hæstv. ráðherra sagði að nyti að sínu viti stuðnings ríkisstjórnarflokkanna og að öllum líkindum stuðnings stjórnarandstöðuflokka líka. Ég skal reyndar segja það hér og nú að ég tel þessar hugmyndir álitlegar.
Ég hef svo sem nefnt það áður í pontu að þetta væri tímapunkturinn sem við ættum að fara í verulegar innviðafjárfestingar, ráðast í stórátak og jafnvel breyta lögum um opinber fjármál til að takast á við það. En ég hefði áhuga á að heyra það frá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvort þessar hugmyndir njóti stuðnings ríkisstjórnarinnar, hvort þær séu til umræðu á borði ríkisstjórnarinnar við gerð nýrrar fjármálaáætlunar. Og það sem væri auðvitað áhugaverðast að heyra er hvernig ríkisstjórnin hyggist fjármagna slíkar innviðafjárfestingar, hvort það verði þá með lántökum eða eignasölu.