150. löggjafarþing — 61. fundur,  20. feb. 2020.

efnahagsmál.

[11:02]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Við höfum rætt þetta mál áður hér í þingsal. Ég tel að nú séu kjöraðstæður til að auka við opinbera fjárfestingu. Innviðafjárfestingar eru akkúrat það mál sem ég hef verið að nefna sérstaklega, t.d. í tengslum við sölu á Íslandsbanka, það geti stutt ríkissjóð í því að fara í átak í innviðafjárfestingu og gera umbreytingar á efnahagsreikningi sínum. Þar þarf málið ekki að raungerast allt á þessu ári heldur á næstu árum. Aðalatriðið er að menn leggi af stað, taki ákvörðun um að umbreyta eigninni þegar réttu aðstæðurnar skapast. Þannig eflum við innviði í landinu án þess að taka það allt saman að láni á meðan eignir eru til staðar.

Ég held að lykilatriðið í þessu efni liggi í tveimur hlutum. Það er annars vegar það að við getum ekki horft upp á að á næstu árum verði ríkissjóður að öðru leyti rekinn í halla. Við þurfum að sjá tekju- og gjaldaliðina ná saman að fráteknum fullfjármögnuðum innviðafjárfestingum. Þarna er ástæða til að hafa ákveðnar áhyggjur vegna þess að tekjur ríkisins um þessar mundir eru að gefa eftir. Það er rétt. Útgjaldaaukningin hefur verið mikil á undanförnum árum og við rísum ekki undir viðlíka útgjaldavexti á næstu árum að óbreyttum tekjuforsendum. Við þurfum því að koma með áætlun sem er trúverðug hvað þetta snertir þannig að við til viðbótar við fjárfestingarátakið séum við ekki að steypa ríkissjóði í tug ef ekki hundruð milljarða rekstrarhalla. Þetta er annars vegar verkefnið.

Hitt er síðan það að velja verkefnin af kostgæfni þannig að við fjárfestum í því sem raunverulega skilar arði fyrir samfélagið. Margt af því sem ég hef heyrt nefnt í umræðunni mun skila afskaplega litlum arði fyrir samfélagið til lengri tíma, jafnvel þó að það auki umsvifin eitthvað tímabundið og fleiri verði ráðnir til vinnu. Þarna held ég að við eigum mikið verk að vinna, dýpka umræðuna um arðbærar innviðafjárfestingar á móti hins vegar hugmyndum um alls konar fjárfestingar sem gera (Forseti hringir.)ekkert annað en að fjölga störfum í landinu tímabundið.