150. löggjafarþing — 61. fundur,  20. feb. 2020.

íslenskur ríkisborgararéttur.

252. mál
[12:12]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Hér eru greidd atkvæði um eitt af mikilvægari ákvæðunum að mínu mati, þar sem sektarfjárhæðir eru hækkaðar, en öðru er líka breytt sem er sjaldnar nefnt, sem er afskaplega mikill meinbugur á gildandi lögum eins og þau hafa verið hingað til. Oft er talað um að þessar sektarfjárhæðir séu úreltar. Það er í sjálfu sér ekki aðalatriðið. Aðalatriðið er að ef maður fær að gildandi lögum tvær sektir og þær eru samanlagt meira en 100.000 kr. fær hann aldrei nokkurn tímann í lífinu ríkisborgararétt á Íslandi. Viðkomandi fengi þau fyrr ef hann færi í tveggja eða tíu ára fangelsi og myndi bíða af sér tímann einu sinni en ef hann fengi tvær sektir og þær færu yfir 100.000-kall. Þetta er augljóslega galli í lögunum, augljóslega ekki vilji löggjafans, en samt sem áður ótvíræður lagatexti.

Þetta hefur leitt af sér mörg mál til undirnefndar allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis um undanþágur á þessum grundvelli og þá hafa nefndarmenn tekið tillit til ýmissa sjónarmiða eins og frægt er orðið. Ég bind vonir við að þessi breyting dragi úr álagi á þá undirnefnd og dragi úr nauðsyn þess að fara undanþáguleið (Forseti hringir.) til að ná niðurstöðu sem mér sýnist mestallur þingheimur vilja hvort sem er.