leiga skráningarskyldra ökutækja.
Herra forseti. Stjórnarfrumvarp þetta á sér rót í stórfelldum brotum sem fólust í fölsun ökumæla í bifreiðum, brotum sem beinast gegn fjárhagslegum hagsmunum og umferðaröryggi. Málið kallaði fram hörð viðbrögð fjölmargra aðila þegar það kom upp. Viðbrögð stjórnvalda mega teljast hafa verið heldur linkuleg og svo er um frumvarp þetta. Af þeim ástæðum leggjum við þingmenn Miðflokksins í atvinnuveganefnd til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar þar sem hún vinni málið betur.
Við þingmenn Miðflokksins munum að öðru leyti ekki greiða atkvæði um frumvarpið.