150. löggjafarþing — 61. fundur,  20. feb. 2020.

leiga skráningarskyldra ökutækja.

386. mál
[12:20]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Mig langar bara örstutt að gera grein fyrir þeirri afstöðu minni að vera ekki á meirihlutaáliti í þessu máli. Ástæðan er einfaldlega sú að ég tel að ekki sé nógu langt gengið. Eins og hv. þm. Jón Þór Ólafsson fór vel yfir áðan kom það mjög skýrt fram hjá gestum nefndarinnar að ástæða hefði verið til að ganga lengra.

Þrátt fyrir það er þetta mjög gott skref og við styðjum því málið og teljum ekki ástæðu til að tefja það.