150. löggjafarþing — 62. fundur, 24. feb. 2020.
breyting á starfsáætlun.
Forseti vill tilkynna eftirfarandi breytingu á starfsáætlun Alþingis, sem samþykkt var á fundi forsætisnefndar og rædd á fundi með formönnum þingflokka í morgun, að fimmtudagurinn 27. febrúar verður nefndadagur en ekki þingfundadagur.
Þá hefur borist beiðni frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um að fyrri umræða um fjármálaáætlun fyrir árin 2021–2025 fari fram nokkrum dögum síðar en starfsáætlun Alþingis gerir ráð fyrir, eða 30. og 31. mars í stað 24. og 25. mars.