150. löggjafarþing — 62. fundur,  24. feb. 2020.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 710, um birtingu alþjóðasamninga, og fyrirspurn á þskj. 508, um stríðsáróður, báðar frá Andrési Inga Jónssyni, og fyrirspurn á þskj. 788, um nefndir, starfs- og stýrihópa, frá Þorsteini Víglundssyni.