raforkuverð til stóriðju.
Fyrir tæplega tveimur vikum birtist illa dulin hótun á heimasíðu Rio Tinto sem rekur álverið í Straumsvík. Þar er vitnað í forstjóra Rio Tinto sem segir standa fyrir dyrum að loka álverinu sökum hás raforkuverðs á Íslandi. Þess ber að geta að forstjóri Rio Tinto minntist ekki einu orði á verðið sem fyrirtækið greiðir fyrir að kaupa súrál af sjálfu sér né 14 milljarða arðgreiðslu árið 2017, en þá var heimsmarkaðsverð á áli svipað og það er í dag. Lokun álversins myndi hafa tímabundin neikvæð áhrif í hagkerfinu ef til hennar kæmi en myndi þó aðallega bitna á starfsfólki álversins til skemmri tíma. Ítrekað hefur verið haldið fram af forsvarsmönnum álveranna og Samorku að orkuverð til stóriðju á Íslandi sé í besta falli í meðallagi en sama fólk hefur ítrekað að trúnaður verði að gilda um raforkuverð þar sem orkufyrirtækin á Íslandi séu í samkeppni við aðra markaði um að draga til sín stóriðjufyrirtæki. Þarna er verið að deila og drottna í krafti ófullkominna upplýsinga á markaði.
Hverjum þjónar upplýsingaskortur sem felst í slíku leynimakki? Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, hefur formlega óskað eftir því við Rio Tinto að aflétta trúnaði af samningum um raforkuverð til álversins. Sé það mikilvægt til þess að opinberlega sé hægt að ræða um raforkuverð og myndun þess. Ég spyr því hæstv. ráðherra hvort hann muni beita sér fyrir því að raforkuverð Landsvirkjunar verði gert opinbert.