150. löggjafarþing — 62. fundur,  24. feb. 2020.

raforkuverð til stóriðju.

[15:05]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Fyrst, bara til að nefna það, þá sögðu forsvarsmenn fyrirtækisins að það væri einn af möguleikunum í stöðunni að loka. En það er rétt, ég las það í gær að forstjóri Landsvirkjunar eða Landsvirkjun hefði formlega óskað eftir því að trúnaði yrði aflétt af samningnum. Ég hef áður sagt og segi það með glöðu geði hér að mér hefur fundist skortur á gagnsæi í þessum málum vondur. Það gerir öllum aðilum sem vilja taka þátt í málefnalegri umræðu, byggðri á staðreyndum, erfiðara fyrir. Það er mikið um ágiskanir og þeir sem búa yfir þessum upplýsingum eru bundnir trúnaði og geta þar af leiðandi ekki einu sinni sagt það sem þeir þó vita. Ég er þeirrar skoðunar að það væri gott fyrir umræðu á Íslandi að meira gagnsæi væri í þessum málum. Eitt er að raforkuverðið sé birt. Annað eru aðrir þættir í þessum samningum vegna þess að það eru líka aðrir þættir í þeim sem geta haft veruleg áhrif á samkeppnisstöðu þessara fyrirtækja hér í samanburði við önnur lönd. Ég myndi fagna því mjög ef menn kæmust að þeirri niðurstöðu að birta annaðhvort samninginn í heild eða þá lykilþætti sem helst er rætt um.

Ég get sjálf í krafti minnar stöðu ekki gert kröfu um að það verði gert enda er þetta viðskiptalegur samningur á milli tveggja aðila. En nú er málið komið í þetta ferli og það verður forvitnilegt að heyra af viðbrögðum fyrirtækisins. Eins og Hörður Arnarson nefndi í gær er þetta orðinn það gamall samningur að viðskiptaleg atriði hafa síður áhrif við birtingu núna. Það er kannski munur á því að birta samning sem er sex mánaða gamall eða margra ára upp á aðra samninga sem eru í bígerð. En ég myndi fagna því mjög ef okkur tækist að ræða um þessi mál út frá staðreyndum og þær staðreyndir væru birtar þannig að allir sem vilja taka þátt í málefnalegri umræðu, byggðri á staðreyndum, geti gert það og ég þar á meðal.