150. löggjafarþing — 62. fundur,  24. feb. 2020.

raforkuverð til stóriðju.

[15:07]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og fagna þessum viðbrögðum en spyr þá líka, af því að mér fannst það ekki alveg koma skýrt fram, hvort ráðherra muni beita sér fyrir því á einhvern hátt. Mér heyrist ráðherrann taka undir orð forstjóra Landsvirkjunar sem er mjög gott, en mun ráðherra beita sér á einhvern hátt? Á næstu árum munu fleiri raforkusamningar sæta endurskoðun og jafnvel stofnað til einhverra nýrra og þar eru tækifæri til að auka gagnsæi á raforkumarkaði til muna með því að neita að skrifa undir samninga sem innihalda áskilnað um trúnað um raforkuverð. Ég spyr hver afstaða hæstv. ráðherra sé til þess að gera raforkuverð á Íslandi algerlega opinbert í framtíðinni og beita sér fyrir því í nútíðinni einnig.