raforkuverð til stóriðju.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Ég nefndi áðan að ég gæti í krafti minnar stöðu ekki gert kröfu um að samningurinn verði birtur eða þessi verð, a.m.k. ekki eins og regluverkið er í dag, af því að þetta eru samningar á milli tveggja aðila á markaði. Ég hef sagt það opinberlega nokkrum sinnum að ég vilji sjá meira gagnsæi og þess vegna hef ég fagnað því að þessi fyrirtæki virðast, alla vega í fjölmiðlum, vera opin fyrir því og nú vitum við af því að þessi beiðni hefur verið send formlega. Við stóðum fyrir því að fara í óháða úttekt á samkeppnishæfni orkufreks iðnaðar á Íslandi þar sem fyrirtækið sem það vinnur fær milliliðalaust upplýsingar frá þessum fyrirtækjum og það á ekki bara við um Rio Tinto heldur önnur fyrirtæki í stóriðju hér. Það mun líka varpa frekara ljósi á raunverulega stöðu, hver þróunin hefur verið og hver staðan er hér á Íslandi.
Um framtíðina veit ég það eitt að raforkumarkaðurinn mun taka töluverðum breytingum. Við erum til að mynda ekki einu sinni með virkan raforkumarkað hér. Ef hann væri það myndum við líka sjá meira gagnsæi í því hvernig verðin verða til og hvað hefur áhrif á þau. Ég vonast því til þess að hvernig sem hann þróast þróist hann í átt til meira gagnsæis.