viðbrögð við kórónuveirunni.
Forseti. Í svona málum skiptir auðvitað máli að við byggjum á gagnreyndum aðferðum sem hafa virkað og gefist vel. Yfir þetta hefur verið farið bæði á vettvangi þjóðaröryggisráðs, sérstökum fundum mínum með sóttvarnalækni sem og á ríkisstjórnarfundum og það eru hinar almennu forvarnir sem gefast best og eru hinar gagnreyndu aðferðir. Þó að það hljómi heldur óspennandi að hvetja fólk til að þvo sér um hendurnar og vera ekki hóstandi í allar áttir í IKEA, eins og hv. þingmaður lýsir hér, þá verðum við að horfa til þess hvað hefur gefist vel í fyrri faröldrum sem hafa gengið yfir heimsbyggðina. Þjóðir heims hafa reynt ýmsar aðferðir, til að mynda að byggja upp skimanir á alþjóðaflugvöllum og annað slíkt, sem ekki komu í veg fyrir útbreiðslu veirusýkinga. Þannig að þegar við erum að taka ákvarðanir um skref verður að byggja á þeim gögnum og rannsóknum sem við eigum. Ég get fullvissað hv. þingmann og alla aðra hv. þingmenn um að okkar fólk, hvort sem það er í almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, heilbrigðisstofnunum eða hjá sóttvarnalækni, er svo sannarlega í viðbragðsstöðu, tekur stöðuna tvisvar á dag um útbreiðslu veirunnar (Forseti hringir.) til þess að við getum sem best brugðist við því og reynt að hefta útbreiðslu hennar hér á landi.