150. löggjafarþing — 62. fundur,  24. feb. 2020.

bann við svartolíu á norðurslóðum.

[15:30]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Líkt og kom fram í fyrra svari mínu þá er náttúrlega búið að stíga mjög stór skref í þá átt sem hv. þingmaður nefnir. Við munum að sjálfsögðu fylgjast mjög vel með því hvað kemur frá Alþjóðasiglingamálastofnuninni í þessum efnum og ef hún gengur lengra en íslensk stjórnvöld þá munum við að sjálfsögðu taka það til gaumgæfilegrar skoðunar.