150. löggjafarþing — 62. fundur,  24. feb. 2020.

frumvarp um tengda aðila í sjávarútvegi.

[15:33]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Því er til að svara að frumvarpið er og hefur verið í samráðsgátt og er afrakstur vinnu verkefnisstjórnar sem skipuð var til að takast á við þær alvarlegu eða miklu athugasemdir sem komu fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit Fiskistofu. Á grunni þeirra athugasemda sem þar komu fram var þessi verkefnisstjórn skipuð. Já, ég er ánægður með vinnu verkefnisstjórnarinnar, hún er skipuð fyrrverandi ríkisendurskoðanda, einum fulltrúa úr stjórnarandstöðu, einum fulltrúa af sveitarstjórnarstiginu og lögmanni ásamt sérfræðingi í ráðuneytinu. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kom fram að meginverkefni og viðfangsefni Fiskistofu hafi verið að reyna að fá raunhæfar lagaskýringar á þessum hugtökum, tengdir aðilar og raunveruleg yfirráð. Menn hafa velt þessu á undan sér nú í tíu ár og aldrei verið tekið á því fyrr en nú að gerð er tilraun til að skýra þessi tvö meginhugtök. Þá fara menn að tala um hvort menn ætli ekki að sýna meiri metnað o.s.frv. Ræðum frekar innihaldið í tillögu verkefnisstjórnarinnar þegar hún kemur fram í frumvörpum fyrir þingið í stað þess að byrja umræðuna strax á því að gera lítið úr störfum verkefnisstjórnarinnar, og ég viðurkenni hér að forsögn hennar er fylgt í frumvarpinu sem fór inn í samráðsgáttina. Og já, ég ítreka að ég met það mikils að samstaða var í verkefnisstjórninni um þær skýringar sem þarna er reynt að gefa á tengdum aðilum og raunverulegum yfirráðum. Ef hv. þingmaður hefur aðra nálgun þá kemur það bara fram, það er fínt, og ég skal glaður hlusta eftir því.