150. löggjafarþing — 62. fundur,  24. feb. 2020.

frumvarp um tengda aðila í sjávarútvegi.

[15:35]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Auðvitað er það tilgangur stjórnvalda með fyrrnefndri samráðsgátt að kalla fram umræðu um þær tillögur og frumvörp sem stjórnvöld leggja fram. Það er m.a. hægt að taka þau til umræðu hér á þessum vettvangi því að nógu lengi þurfum við að bíða eftir því að stjórnin leggi einhver mál fyrir þingið hvort eð er, þannig að það er ágætt að horfa bara til þess sem kemur í samráðsgáttina. Flest virðist ekki komast lengra

Það er alveg einstakt að horfa upp á þetta metnaðarleysi. Það er vissulega rétt að þarna er farið í einhverjar tæknilegar skýringar sem eru mikilvægar og það er skerpt á hlutverki Fiskistofu sem er mikilvægt. En það er ekki í neinu breytt í því sem teljast vera tengdir aðilar í dag. Það er í besta falli prófarkalestur á núgildandi ákvæðum. Ég tel það harla metnaðarlítið og þess vegna kemur eiginlega enn meira á óvart að það teljist síðan þurfa sex ára aðlögunartíma fyrir fyrirtæki að aðlaga sig breytingum sem engar eru.