frumvarp um tengda aðila í sjávarútvegi.
Virðulegi forseti. Þegar hv. þingmaður kvartar undan því að fyrirtækjum kunni að vera gefinn sex ára aðlögunartími að breyttum aðstæðum minni ég hann á það frumvarp sem hann flutti ásamt fleiri aðilum sem gefur fyrirtækjum allt að 20 ára tíma til að aðlagast þeim breytingum sem þar eru lagðar til. Það fer bara eftir því hvernig liggur á mönnum hverju sinni hvaða afstöðu þeir taka til slíkra tímamarka sem hér eru nefnd, og þau eru vissulega til umræðu og sjálfsagt að nálgast það með öðrum hætti. En mér kemur það dálítið spánskt fyrir sjónir, eða til eyrna ef það mætti orða það þannig, að kvartað sé undan því að hér komi mál seint fram sem varða þetta atriði. Við óskuðum eftir því við verkefnisstjórnina að flýta vinnu sinni varðandi þetta mál því að þarna er að flestra mati sem til þekkja, í ljósi óskýrra hugtaka og notkunar þeirra, vandinn falinn fyrir eftirlitsstofnanir okkar, Fiskistofu, að meta hvort fyrirtæki sé undir eða yfir hámörkunum sem tilgreind eru bæði í aflamarkskerfinu og krókaaflamarkinu. Þar hefur meginvandinn legið (Forseti hringir.) og þá er gert lítið úr því að menn séu að reyna að leita skýringa og skýra þau grundvallarhugtök sem gefa okkur færi á því að ræða af einhverri skynsemi um hámörk og lágmörk (Forseti hringir.) sem sett hafa verið inn í fiskveiðistjórnarkerfið.