150. löggjafarþing — 62. fundur,  24. feb. 2020.

heilsugæsla á Suðurnesjum.

[15:40]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa mikilvægu fyrirspurn. Við höfum auðvitað verið í miklum samskiptum við Suðurnesjamenn allan minn tíma í embætti og við fylgjumst mjög vel með öllum breytingum sem verða þar. Því er til að svara að það er rétt sem kemur fram í fyrirspurn hv. þingmanns að mannfjölgunin hefur verið töluverð eða um 25% á sl. tíu árum en meginfjölgunin hefur þó átt sér stað á síðustu þremur árum. Fjárframlög til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hafa aukist á tímabilinu 2014–2020 á föstu verðlagi um 22%. Við höfum á mínum tíma horft sérstaklega til sérstakra framlaga sem hafa verið veitt til að styrkja heimahjúkrun, til að styrkja rekstur tímabundið. Við höfum lagt fram sérstakt framlag til að efla heilsugæslusviðið og sérstaka fjárveitingu til að styrkja stofnunina vegna falls WOW air á síðasta ári. Það var auðvitað mjög mikilvægt framlag til að efla bæði heilsugæslu og aðra þjónustu.

Landlæknisembættið hefur gert skýrslu um heilsugæsluna á Suðurnesjum, af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um hana. Þar erum við með í raun nýja eftirfylgniskýrslu og þar hefur dregið til töluverðra tíðinda, þ.e. í gæðum þjónustunnar sem þar er veitt. Það hafa verið innleiddir gæðavísar, teymisvinna hefur verið aukin, það hefur betur gengið að manna stöður lækna og hjúkrunarfræðinga og sem stendur eru allar hjúkrunarfræðingastöður fullmannaðar. Þetta kemur fram í skýrslu embættisins. Það hefur líka áunnist nokkuð við að bæta mönnun sálfræðinga, stöðugildum hefur fjölgað þar, og það er vissulega brýnt að bæta geðheilsuþjónustuna enn þá frekar. En ég er mjög meðvituð um það sem hv. þingmaður nefnir varðandi heilsugæsluna og mögulega þörf á því að bæta við heilsugæslu á þessu svæði. Mér finnst það koma fyllilega til skoðunar, en aðalatriðið (Forseti hringir.) er að gæði þjónustunnar séu fullnægjandi fyrir íbúa Suðurnesja eins og annarra landsmanna.