150. löggjafarþing — 62. fundur,  24. feb. 2020.

heilsugæsla á Suðurnesjum.

[15:42]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Hæstv. ráðherra segir að eitthvað hafi verið gert og reynt að laga málin og það má vera. En það er samt ekki nóg. Það er samt svo kristaltært að Suðurnesjamenn þola ekki þetta ástand. Um 2.000 Suðurnesjamenn eru með heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu og eru í raun hraktir í þá stöðu. Ríkið greiðir með þessum Suðurnesjamönnum til viðkomandi heilsugæslustöðva en fjárskortur veldur því að þjónustuna er erfitt að fá í heimabyggð. Suðurnesin fá lægsta framlag á hvern íbúa til heilsugæslu. Lýðheilsuvísar embættis landlæknis sýna að hvergi á landinu er meiri þörf fyrir heilsugæslu en einmitt á Suðurnesjum á hvern íbúa.

Er hæstv. ráðherra ekki sammála því að nú þurfi að bretta upp ermar og jafna leikinn þannig að Suðurnesjamenn sitji a.m.k. við sama borð og aðrir landsmenn?