150. löggjafarþing — 62. fundur,  24. feb. 2020.

heilsugæsla á Suðurnesjum.

[15:43]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Það hefur ekki komið fram í þessari umræðu en annars staðar hefur það komið fram að nú er verið að prufukeyra, ef svo má að orði komast, greiðslumódel fyrir heilsugæsluna á landsbyggðinni. Við höfum nokkra reynslu af því hér á höfuðborgarsvæðinu að keyrt sé ákveðið fjármögnunarlíkan sem er ætlað að stilla fjármögnun heilsugæslunnar miðað við íbúasamsetningu og íbúafjölda. Við höfum tekið ákvörðun um það í heilbrigðisráðuneytinu að skuggakeyra í raun og veru nýtt módel á þessu ári og fylgjast vel með þessu frá einum mánuði til annars þannig að það endurspegli í raun þá fjármögnunarþörf sem er fyrir hendi. Við getum ekki sagt að landsbyggð á Íslandi sé eitthvað eitt, þ.e. að Vestfirðir og Suðurnesin séu það sama. Þess vegna viljum við stilla þetta þannig af að sérstök íbúasamsetning, eins og um er að ræða á Suðurnesjum, aldurssamsetning sem er að sumu leyti önnur þar en annars staðar á landinu, endurspeglist í fjármögnun heilsugæslunnar. Í mínum huga skiptir gríðarlega miklu máli fyrir íbúaþróun, uppbyggingu og lífskjör á Suðurnesjum að heilsugæslan sé þar eins og best verður á kosið.