150. löggjafarþing — 62. fundur,  24. feb. 2020.

staða efnahagsmála og viðbrögð ríkisstjórnarinnar við kólnun hagkerfisins.

[15:58]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Herra forseti. Mikilvægt er að tala um stöðu efnahagsmálanna. Ég tek undir með hæstv. fjármálaráðherra sem talar um að það sé meginviðfangsefni ríkisstjórnarinnar að stíga í takt við ölduna og við séum þá með aðgerðir og fjármálastefnu sem rímar við stöðuna í hagkerfinu hverju sinni.

Hæstv. ráðherra fór yfir það að ríkisstjórnin muni og sé að grípa til ráðstafana vegna kólnunar í hagkerfinu. Það eru nokkrir þættir sem mér finnst skipta máli í því hvernig það er gert og með hvaða gleraugu menn fara inn í aðgerðir. Við þessar aðstæður tel ég mjög mikilvægt að líta til þess hvernig kólnun í hagkerfinu kemur við ólíka hópa og það er einmitt á þessum tímapunkti sem mikilvægt er að standa vörð um hið félagslega kerfi og þá sem nú þegar eru í viðkvæmri stöðu, að hún verði ekki enn verri. Það skiptir einnig máli, þegar gripið er til aðgerða til að örva atvinnulífið, að horfa til þess að aðgerðir geta komið með ólíkum hætti við karla og konur. Ekki má grípa til aðgerða sem verða í framhaldinu til þess að langtímaatvinnuleysi annars kynsins aukist til langs tíma. En við höfum dæmi úr heimssögunni um slíkar aðgerðir, þannig að allt þetta þarf að hafa í huga.

Og svo vegna orða hans um að draga úr bákninu sem hv. síðasti þingmaður talaði um; báknið er hið opinbera, báknið er samfélagið okkur. Það er einmitt það sem þarf að vera sterkt þegar hagkerfið er að kólna.