150. löggjafarþing — 62. fundur,  24. feb. 2020.

staða efnahagsmála og viðbrögð ríkisstjórnarinnar við kólnun hagkerfisins.

[16:03]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Víglundssyni fyrir þessa umræðu um stöðu efnahagsmála og þá kólnun sem við horfum á í hagkerfinu og ég þakka jafnframt innlegg hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. Það hefur verið ágætlega rakið hvað við erum að horfast í augu við og þá mótdrægni sem blasir við þegar kemur að útflutningsatvinnuvegunum okkar, hvort sem það er ferðaþjónustan, áliðnaðurinn eða sjávarútvegurinn og loðnubrestur. Þá finnst mér mikilvægt að rifja upp nokkur atriði. Fyrir tæpu ári breytti ríkisstjórnin fjármálastefnu sinni og byggði óvissusvigrúm inn í stefnu sína, sem er 0,8% af vergri landsframleiðslu, sem við svona aðstæður getur gefið svigrúm upp á 24–25 milljarða halla og þá eru ríkisfjármál að vinna sjálfvirkt. En þá erum við að horfa á allan ríkisreksturinn. Ef við horfum til þess að bregðast við núna með sérstöku átaki innviða verðum við líka að horfa á þetta í samhengi við ríkisfjármálin. Við kláruðum fjárlög fyrir þetta ár með 0,3% halla af vergri landsframleiðslu, um það bil 10 milljarða halla, og þá eru fjárlögin að vinna nokkurn veginn sjálfvirkt gegn hagsveiflunni í gegnum minnkandi skatttekjur, hærri útgjöld, hærri atvinnuleysisbætur o.s.frv.

Ég vil jafnframt nefna að hagvöxtur á liðnu ári verður 0,6% í stað spár um 0,2% samdrátt. Það er jákvætt í þessari stöðu. Í þriðja lagi vil ég nefna framlag ríkisstjórnarinnar til lífskjarasamninganna. Þegar allt verður komið til er um 80 milljarða framlag í formi skattalækkana og svo er búið að boða lækkun bankaskatts, lækkun tryggingagjalds og allt mun það vinna með.

Ég get tekið undir það með hæstv. fjármálaráðherra að það er lag núna, ríkissjóður stendur sterkt. (Forseti hringir.) Hæstv. menntamálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, hefur talað mjög afgerandi fyrir innspýtingu í formi skynsamlegra arðbærra innviðafjárfestinga og ég get svo sannarlega tekið undir með henni í því.