150. löggjafarþing — 62. fundur,  24. feb. 2020.

staða efnahagsmála og viðbrögð ríkisstjórnarinnar við kólnun hagkerfisins.

[16:27]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Vandamálin eru nokkur í hagkerfi landsins í dag. Ég nefndi áðan skort á fjármagni í hagkerfið svo fyrirtæki geti fjármagnað þróun, rannsóknir og markaðssetningu svo eitthvað sé nefnt. Það eru auðvitað fleiri vandamál, en ofnæmi meiri hluta ríkisstjórnarinnar fyrir opinberum fjárfestingum hefur að einhverju leyti dregið úr viðbragðsþrótti hagkerfisins. Talað er um að ekki megi ráðast í t.d. byggingu nýrrar Ölfusárbrúar nema einhverjir einkafjárfestar komi að verkefninu og rukki svo veggjöld. Maður spyr sig þá að vísu hvernig núverandi Ölfusárbrú varð til á sínum tíma eða hvernig vegakerfið varð til á sínum tíma, hitaveitur landsins eða aðrir nauðsynlegir innviðir. Það er orðin langþreytt þvæla að ekki megi fjárfesta í samfélaginu nema einhverjir einkaaðilar græði og það er orðin langþreytt þvæla að ríkissjóður standi ekki undir uppbyggingu samfélagsins.

Það er rétt sem hv. þm. Óli Björn Kárason kom inn á að við höfum töluvert digra sjóði, bæði gjaldeyrisvarasjóði og annað, og þótt ég sé mjög hrifinn af því að eiga digra sjóði þá er alltaf gagnlegt að fjárfesta í uppbyggingu vegna þess að ef maður fjárfestir í framtíðinni er það góð leið til þess að tryggja að sjóðurinn verði enn digrari með tímanum í staðinn fyrir að drabbast niður.

Að lokum langar mig að segja um þetta svokallaða bákn sem Miðflokkurinn vísar stöðugt í að það er býsna merkilegt að þeir segja aldrei nákvæmlega hvaða bákn þeir eru að tala um. Ég er ekki viss um að þeir viti það sjálfir.

Ég þakka hv. þm. Þorsteini Víglundssyni fyrir að hvetja til þessarar umræðu, enda ekki vanþörf á að við tölum um stóru myndina við og við, ekki síst þegar stefnan í ríkisrekstri hefur verið í gargandi andstöðu við markmið um hagsæld svona lengi.