150. löggjafarþing — 62. fundur,  24. feb. 2020.

neytendalán og aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

582. mál
[16:38]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S):

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa mörg orð hér en þó er rétt að fylgja úr hlaði breytingartillögu frá efnahags- og viðskiptanefnd varðandi 1. gr. frumvarpsins. Breytingartillagan er á þskj. 987 og þar segir:

„Í stað orðanna „eru jafnframt fjármálafyrirtæki samkvæmt skilgreiningu laga um fjármálafyrirtæki“ í 1. mgr. a-liðar 6. gr. laganna kemur: hafa jafnframt heimild til lánveitinga til neytenda samkvæmt sérlögum og eru eftirlitsskyldir aðilar samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.“

Ástæða þessarar breytingartillögu er í sjálfu sér einföld. Við erum að segja að ef þessi breytingartillaga kæmi ekki fram væru hér aðilar sem væru leyfisskyldir og eftirlitsskyldir hjá FME en líka skráningarskyldir hjá Neytendastofu sem er auðvitað algjör óþarfi, tvíverknaður og ruglar allt. Það er sem sagt verið að segja að þessir aðilar starfi samkvæmt leyfi. Þetta geta t.d. verið kortafyrirtæki og þau starfa samkvæmt leyfi og undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins þannig að það sé skýrt.