150. löggjafarþing — 62. fundur,  24. feb. 2020.

neytendalán og aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

582. mál
[16:39]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Ég ætla aftur ekki að vera mjög lengi en ég vildi aðeins minnast á það að uppi hafa verið ákveðnar áhyggjur varðandi nákvæma orðalagið í 1. gr. frumvarpsins. Það snýr aðallega að því að það er rosaleg flækja hvað nákvæmlega öll þessi hugtök þýða þegar við erum að tala um „rafræna undirskrift“, „fullgilda rafræna undirskrift“ og þar fram eftir götunum. Það kom á daginn að við hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir höfðum í rauninni nákvæmlega sömu áhyggjur og við ræddum okkur niður á breytingartillögu sem við munum leggja fram fyrir 3. umr. sem snýr að því að bæta orðinu „fullgilt“ aftur inn, þ.e. fella það ekki út eins og á að gera samkvæmt núverandi frumvarpi. Það er bara til að hnykkja á því að við viljum auðvitað að fólk noti réttu auðkennisformin en að síðan komi þessi „eða-klásúla“ í kjölfarið sem í rauninni býður upp á sveigjanleikann sem þarf til að vinna vel úr þessu.

Það er líka ágætt að nefna að það er breyting á gildistökuákvæðinu í frumvarpinu sem gefur okkur svigrúm fram á sumar til að skoða þetta aðeins betur. Enn eru ákveðnar spurningar uppi og við þurfum bara að gera þetta rétt. Við erum í pínu tímaþröng núna en með þessari lausn getum við a.m.k. verið nokkuð örugg. Síðan getum við andað aðeins í kviðinn fram að páskum og reynt að finna út hvort þetta sé ekki örugglega rétta endanlega lausnin.