barnaverndarnefndir.
Virðulegur forseti. Í dag geta einstaklingar haft samband við eftirlitsaðilann sem er Barnaverndarstofa eða Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu sem er ráðuneytisstofnun. Það sem við ætlum okkur að styrkja er allt sem lýtur að eftirliti með málefnum barna. Það á að vera meira eftirlit með því að löggjöf sé fylgt, hvort sem eru barnaverndarnefndir eða ríkisstofnanir, félagasamtök eða aðrir sem þjónusta börn með einum eða öðrum hætti. Reglum á að fylgja og það eiga að vera harðari viðurlög gagnvart hverjum þeim sem ekki virðir reglurnar. Það verður að koma fram í frumvarpinu sem mun koma í þingið en það er of langt mál að útskýra það hér í svari við einfaldri fyrirspurn.
Þegar kemur að því hvernig við ætlum að draga úr ofbeldi gegn börnum er m.a. sú nýja hugsun sem á að felast í því að við ætlum á einum stað í landinu að kalla saman alla tölfræði sem lýtur að börnum og halda utan um það sundurliðað eftir sveitarfélögum. Öll ráðuneyti og sveitarfélög koma síðan að mótun forvarnaaðgerða ár hvert. Það er kjarninn í þessari hugsun líka sem verður síðan unnin á fyrsta stigi í þessu nýja kerfi þar sem við getum á hverju ári komið með gagnreyndar aðferðir til að draga úr ofbeldi gegn börnum með ýmsum hætti. Það eru til margar gagnreyndar aðferðir sem geta aðstoðað við að draga úr ofbeldi gegn börnum. Þar eigum við að geta náð miklu betri árangri. Þegar kemur að þeim tilvikum þar sem ofbeldi á sér stað getum við líka styrkt stöðu þessara barna og aukið þjónustu við þau, við þolendur, og aðstoðað við það. Það erum við líka að styrkja. Ég held að það sé mjög erfitt að útskýra þetta í tveggja mínútna svari við fyrirspurn á þingi en ég þakka þingmanninum fyrir fyrirspurnina. (Forseti hringir.) Málefnið er brýnt og ég vildi gjarnan geta talað um það lengur.