endurskoðun á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að vera til svara vegna spurninga sem ég legg fram til munnlegs svars. Þær varða starfsöryggi launþega. Ég velti fyrir mér hvort eitthvað sé í deiglunni varðandi það að breyta lögum nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur, þar sem þau eru dálítið aldin, þannig að réttindi fólks á vinnumarkaði verði aukin gagnvart heimildum atvinnurekenda til uppsagna á starfsfólki, að atvinnurekendum verði gert skylt í raun að greina málefnalega og ítarlega frá ástæðum uppsagnar.
Það vekur athygli að í alþjóðlegum samanburði virðist Ísland ekki standa sig ýkja vel hvað varðar starfsöryggi launþeganna. Eins og staðan er nú hér á landi njóta raunar aðeins trúnaðarmenn, foreldrar í fæðingarorlofi og þungaðar konur einhvers konar starfsöryggis í reynd, en þessir hópar eiga þó í vök að verjast. Um það vitna allmargar frásagnir. Íslendingar hafa fullgilt mun færri samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar en nágrannalöndin, Norðurlöndin. Á meðan Norðurlöndin hafa fullgilt á bilinu 70–100 samþykktir í hverju landi erum við með u.þ.b. 22. Er þetta ekki áhyggjuefni, hæstv. ráðherra? Er ekki ástæða til að bregðast við?
Þær spurningar sem ég kýs að leggja fyrir hæstv. ráðherra eru um hvort fyrirhuguð er heildarendurskoðun á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, þá í ljósi þeirra alþjóðasamþykkta sem við höfum skoðað í allmörg ár og 35 þjóðlönd hafa þegar samþykkt, m.a. öll Norðurlöndin, á sína vísu. Ef ekki, hyggst ráðherra beita sér fyrir endurskoðun einstakra þátta laganna, t.d. mikilvægra þátta þar sem ágreiningur hefur risið um réttindi almennra starfsmanna og þeirra sem taldir hafa verið í sérstakri réttarstöðu á vinnustað, t.d. trúnaðarmanna? Telur ráðherra að réttindi fólks á vinnumarkaði séu nægilega tryggð gagnvart atvinnurekanda þegar kemur að heimildum til uppsagnar? Telur ráðherra að lögin eigi að vera skýr um að vinnuveitanda beri að greina málefnalega, efnislega og ítarlega frá ástæðum uppsagnar? Alþjóðasamþykktir segja til um það.