endurskoðun á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðjóni Brjánssyni fyrir þessa fyrirspurn og vil byrja á að segja, líkt og hann getur um, að lög um stéttarfélög og vinnudeilur eru frá árinu 1938 og þar með orðin rúmlega 80 ára gömul. Það gefur augaleið að margt í lögunum þarfnast endurskoðunar bara til að standast tímans tönn. Það er líka þannig, og rétt að vekja athygli á því þótt ekki þurfi að gera það gagnvart þingmanninum, að ákvæði í lögunum varða uppsagnir og gilda á almennum vinnumarkaði en á opinbera markaðnum eru kröfurnar skýrari.
Þingmaðurinn veltir fyrir sér hvort fyrir dyrum standi einhver heildarendurskoðun á þessum lögum. Hingað til hefur ekki verið farið í heildarendurskoðun á þeim. Samtök aðila vinnumarkaðarins hafa ekki farið formlega fram á slíka heildarendurskoðun, en þó ber þess að geta að við gerð lífskjarasamninganna var sérstakt ákvæði sem laut að því að skoða allt umhverfi, ekki bara kjarasamningsgerðar heldur líka umhverfið sem þessi lög um stéttarfélög og vinnudeilur skapa okkur. Í 33. gr. lífskjarasamninganna segir, með leyfi forseta:
„Stjórnvöld og heildarsamtök á vinnumarkaði vinni saman að gerð grænbókar um framtíðarumhverfi kjarasamninga og vinnumarkaðsmála. Grænbókin verði lögð fyrir Alþingi til umfjöllunar áður en stefnumarkandi ákvarðanir verði teknar.“
Þarna má segja að við séum að skuldbinda okkur með ákveðnum hætti. Raunar var það líka áhersla ríkisstjórnarinnar að farið yrði í þessa vinnu en ekki hefur áður komið fram vilji til þess að fara í heildarendurskoðun þeirra laga. Ég held að það verði rætt við vinnslu þessarar grænbókar vegna þess að ég held að fjölmörg atriði þarfnist umfjöllunar. Aðilar vinnumarkaðarins semja um kaup og kjör á almennum vinnumarkaði og eins og þingmaðurinn veit kveða lögin á um ákveðnar lágmarksreglur. Ég á eftir að sjá hvað kemur út úr samtali aðila á milli, hvort það sé raunverulegur vilji til að breyta því. (Forseti hringir.) Ég er ekki endilega viss um að það sé en ég held að það sé alveg í lagi að taka umræðuna um það og ég vonast til að það verði gert við vinnslu grænbókarinnar.