150. löggjafarþing — 64. fundur,  25. feb. 2020.

vestnorræn umhverfisverðlaun hafsins.

511. mál
[14:19]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir stuttu nefndaráliti utanríkismálanefndar um þingsályktunartillögu varðandi vestnorræn umhverfisverðlaun hafsins. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðjón S. Brjánsson, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, og Bylgju Árnadóttur, ritara Íslandsdeildar. Með tillögunni er skorað á ríkisstjórnina að kanna möguleika á að koma á vestnorrænum umhverfisverðlaunum hafsins í samstarfi við landsstjórnir Færeyja og Grænlands. Tillagan er lögð fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins nr. 2/2019 sem samþykkt var á ársfundi ráðsins 23. október 2019 í Nuuk.

Í greinargerð með tillögunni kemur m.a. fram að stofnun vestnorrænna umhverfisverðlauna hafsins myndi vekja athygli alþjóðasamfélagsins á mikilvægi hafsins fyrir komandi kynslóðir og heimsbyggðina alla. Verðlaunin yrðu veitt fyrir sérstakt frumkvæði og vinnu að umhverfisvernd í hafi eða sjálfbærri nýtingu sjávarauðlinda. Verðlaunin yrðu veitt frumkvöðlum, samtökum, fyrirtækjum, sveitarfélögum, ríkisstjórnum, stofnunum eða einstaklingum, hvort sem er á Vestur-Norðurlöndum eða utan þeirra. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Gunnar Bragi Sveinsson og Rósa Björk Brynjólfsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Bryndís Haraldsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.

Undir nefndarálitið skrifa hv. þingmenn Sigríður Á. Andersen, Logi Einarsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson og ég, Bryndís Haraldsdóttir.