fundur þjóðaröryggisráðs vegna Covid-19 veirunnar.
Herra forseti. Ég kem hingað upp í fyrsta lagi til að lýsa yfir eindregnum stuðningi við stjórnvöld vegna almannavarna í landinu og hvernig þau hafa meðhöndlað það hvernig við eigum að bregðast við Covid-19 veirunni. Ég vil hrósa almannavörnum, sóttvarnalækni, landlækni, lögregluembættum og fleirum sem hafa verið að miðla upplýsingum. Ég vil líka hrósa ríkisstjórninni, ekki segja „aldrei þessu vant“ en ég vil líka gera það, m.a. hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að hafa brugðist snöfurmannlega við og bætt í þegar það var ákall um meiri mannafla. Ég verð líka að draga fram að það vekur traust hvernig heilbrigðisráðherra nálgast málið. Þetta skiptir máli. Það skiptir máli að við notum ekki svona tækifæri til þess að setja okkur í stellingarnar stjórn/stjórnarandstaða. Á svona stundum finnst mér mikilvægt að við sýnum samtakamátt og ég er sannfærð um að við náum betri árangri með því að tala saman og hlusta hvert á annað. Og talandi um að hlusta, það sem skiptir okkur langmestu í þessu öllu er að hlusta og fara að ráðleggingum þeirra sem mestu sérfræðingarnir eru. Er ég með því að segja: Nei, við eigum ekki að draga fram ótta? Eðlilega er ótti í samfélaginu. Þegar ég tala við vinkonu mína sem er með undirliggjandi vanda í ónæmiskerfi, eldri borgara sem eiga um sárt að binda, er það eðlilegur ótti og það verður að svara þeim ótta og það er gert. Ég vil hrósa sérstaklega almannavörnum hvað það varðar.
Tíminn er að verða búinn. Ég ætlaði að koma með tvær spurningar til forsætisráðherra, en ég sé að ég hef bara tíma fyrir eina spurningu. Þjóðaröryggisráð kom saman í dag. Kom eitthvað ákveðið fram á þeim fundi sem forsætisráðherra telur rétt að miðla til almennings? Ég vil bara koma með eina ábendingu og fá viðbrögð við því. Ég tel vanta í (Forseti hringir.) þjóðaröryggisráð forystufólk frá sjúkraflutningamönnum og slökkviliðsmönnum. Þeir aðilar eru fyrstir á vettvang (Forseti hringir.) og ég hef fundið fyrir því að það gætir ákveðins óöryggis hvað það varðar að vera ekki (Forseti hringir.) við borðið þegar kemur að þjóðaröryggisráði.