fundur þjóðaröryggisráðs vegna Covid-19 veirunnar.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir hvatningarorð hennar, þau skipta máli. Ég er sammála hv. þingmanni, mér finnst bæði heilbrigðisyfirvöld og forystufólk almannavarna hjá embætti ríkislögreglustjóra, fyrir utan aðra viðbragðsaðila, hafa staðið sig mjög vel við erfiðar aðstæður í því að miðla upplýsingum með skýrum hætti á miklum óvissutímum. Við sjáum að stöðumatið breytist dag frá degi hjá nágrannaþjóðum okkar þannig að það er flókið viðfangsefni að miðla upplýsingum til almennings þegar við erum í raun stödd í svona miklu óvissuástandi.
Við höfum að sjálfsögðu haft samráð við Norðurlöndin og sömuleiðis við þau lönd sem við deilum með ytri landamærum innan Evrópu til að aðgerðir séu samstilltar. Stýrihópur ráðuneytisstjóra allra ráðuneyta hefur verið skipaður því að þetta varðar auðvitað allt þjóðfélagið, hvort sem við erum að tala um heilbrigðisstofnanir eða skólastofnanir, samgöngur og flugferðir svo að nokkur dæmi séu tekin. Þannig erum við að reyna að tryggja sem besta samhæfingu stjórnkerfis.
Ég vil að auki nefna að utanríkisráðuneytið tekur með reglubundnum hætti saman yfirlit yfir aðgerðir annarra landa vegna veirunnar. Þjóðaröryggisráð kom saman í morgun á öðrum upplýsingafundi sínum vegna málsins, af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega út í það. Það var fyrst og fremst til að fara yfir stöðu mála. Það hefur komið fram að miðað við höfðatölu hafa margir verið greindir með veiruna hér. Það er ekki síst vegna þess að við erum að greina fleiri. Við erum að senda mjög marga í sýnatöku. Af hverju erum við að því? Jú, aðgerðir okkar miða allar að því að hægja á útbreiðslu veirunnar og tryggja að innviðir okkar standist þetta álag. Það er meginmarkmiðið. Þess vegna erum við að beita þeim aðgerðum sem við erum að beita, senda þá í sóttkví sem eru á áhættusvæðum og tryggja með þeim hætti hægari útbreiðslu.
Hv. þingmaður nefnir fulltrúa sjúkraflutninga og slökkviliðsmanna. Ég held að það sé ráð að ræða skipan þjóðaröryggisráðs í heildstæðu samhengi því að það er margt sem hefur komið þar upp, (Forseti hringir.) á því rúmlega tveimur og hálfu ári sem ég hef veitt því forstöðu, sem ég tel ástæðu til að ræða hér á þingi, (Forseti hringir.) til að mynda aðkomu fjarskiptaöryggisráðherrans hvað varðar netöryggismál. Ég held því að þetta sé umræða sem við þurfum að taka betur á vettvangi Alþingis.