150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

fundur þjóðaröryggisráðs vegna Covid-19 veirunnar.

[13:42]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Bara svo að ég ljúki því sem ég nefndi hér um skipan þjóðaröryggisráðs tel ég að það komi til greina að skoða sérstaklega aðkomu heilbrigðisyfirvalda með einhverjum hætti að slíku ráði, en fulltrúar þeirra hafa verið boðaðir á þessa sérstöku upplýsingafundi sem hafa verið haldnir vegna veirunnar.

En þá komum við að efnahagslegum áhrifum og ríkisstjórnin er þegar farin að undirbúa viðbrögð við þeim. Raunar vil ég segja, af því hv. þingmaður kallar eftir aðgerðum, að ég tel að skattatillögur okkar sem voru samþykktar fyrir áramót en ganga nú í gildi, hvort sem það er lækkun tekjuskatts á hina tekjulægri eða lækkun tryggingagjalds, gætu ekki komið á heppilegri tíma til þess að sporna gegn slaka í efnahagslífinu og auka ráðstöfunartekjur. Ég er að fylgjast með því sem önnur ríki eru að gera. Þau eru að gera þetta núna, það sem við vorum búin að gera. Við höfum að sjálfsögðu verið að auka opinbera fjárfestingu og koma með tilslakanir í tengslum við lífskjarasamninga sem eru mjög heppilega tímasettar og styðja við kaupmátt. En það liggur líka fyrir að við þurfum að horfa sérstaklega til ferðaþjónustunnar, hvað við ætlum að gera varðandi hana. Þar er kallað eftir því að við vinnum saman með aðilum ferðaþjónustunnar að því að bregðast við því tjóni sem (Forseti hringir.) kann að verða vegna fækkunar ferðamanna og við þurfum sömuleiðis að eiga gott samtal við þingið um þær aðgerðir sem verður gripið til í efnahagsmálum svo að ég ítreki það.