fjárhagsstaða eldri borgara, öryrkja og láglaunafólks.
Virðulegur forseti. Hæstv. fjármálaráðherra sagði í viðtali við Kjarnann 23. febrúar sl. að eitt það merkilegasta sem ríkið hefði gert væri að opna bækurnar með því að opna vefinn tekjusagan.is. Þar væri einfaldlega hægt að fletta því upp hvernig kjör hafa þróast á Íslandi frá 1991.
Hæstv. fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson hefur fullyrt hvað eftir annað að ríkisstjórninni hafi tekist stórkostlega að bæta lífskjör á Íslandi og einna best hjá þeim hópum sem helst eru í umræðunni í dag, eldri borgurum og þeim sem eru neðst á launastiganum og vísað í umræddan vef því til sönnunar.
Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra: Er hægt á umræddum vef að sjá skerðingar sem öryrkjar og eldri borgarar verða fyrir seinna eða við skerðingardaginn mikla 1. júlí ár hvert? Er hægt að sjá afturvirkar skerðingar upp á milljarða króna eftir ár? Nei, það er ekki þarna inni. Því er það ekkert annað en gróf fölsun að vísa í þennan vef í þeim tilgangi að upphefja ríkisstjórnina á fölskum forsendum og sýna að henni hafi tekist stórkostlega að bæta lífskjör þeirra hópa sem helst eru í umræðunni í dag, eldri borgara og öryrkja.
Ríkisstjórnin hefur sett inn til eldri borgara um 8,4 milljarða í verðlagsbætur á þremur árum og á sama tíma skert með fjárhagslegu ofbeldi um 6 milljarða kr. Eldri borgarar eru því sjálfir að borga 75% af hækkuninni með skerðingum á eigin bótum. Er þetta það sem hæstv. ráðherra er svona ánægður með? 75% skerðingar eru aukningin á skerðingum til eldri borgara. Þrjár krónur af fjórum koma í skerðingar til að bæta upp verðlagsþróun sem eru bætur til þeirra eldri borgara og þetta er þessi stórkostlega hækkun. Hvernig fær hæstv. ráðherra þetta út? Hvernig er hægt að sjá þetta á tekjusagan.is?