150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

fjárhagsstaða eldri borgara, öryrkja og láglaunafólks.

[13:48]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir rýr svör. Hann svaraði ekki. Er það eðlilegt að þrjár krónur af fjórum komi í auknum skerðingum til þess að miðla yfir til þeirra sem eiga þessa peninga upphaflega? Er það eðlilegt að hæla sér af því að verið sé að bæta kjör þessara stétta með því að taka þrjár krónur af hverjum fjórum með skerðingu til þess að færa yfir? Þetta bara stenst ekki.

Síðan er annað í þessu og það eru þeir sem eru fátækir í þessu kerfi í dag. Þeir lifa 10–12 árum skemur en þeir ríku. Og hvað er verið að gera í sambandi við fólk sem hefur verið í fátækt í mörg ár? Fæðið er lélegt, húsnæðið er lélegt og það hefur ekki efni á heilbrigðisþjónustu. Nú er veiran komin upp. Er eitthvað í gangi til að verja þetta fólk og sérstaklega þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma eins og veik börn, eldri borgara og annað fólk sem er með undirliggjandi alvarlega sjúkdóma? (Forseti hringir.) Margir í þessum hópi hafa verið í svelti og hafa ekki einu sinni haft efni á almennilegum mat, hvað þá spritti.