fjárhagsstaða eldri borgara, öryrkja og láglaunafólks.
Virðulegi forseti. Ég átta mig ekki alveg á því hvernig hv. þingmaður hugsar hið félagslega öryggisnet sem almannatryggingar eru. Að líta þannig á að þrjár af hverjum fjórum krónum komi frá kerfinu sjálfu í gegnum skerðingar er að snúa öllu saman á rönguna. Við notum tekjutengingar, sem hv. þingmaður kallar skerðingar, til þess að tryggja að þeir takmörkuðu fjármunir sem við getum lagt í almannatryggingar rati til þeirra sem hafa minnst. Þetta er svona einfalt. Án tekjutenginga væru fleiri og fleiri krónur að fara til þeirra sem eru með meira. Svo getum við endalaust tekist á um það hversu hátt við eigum að ganga upp tekjustigann og skoða aðrar tekjur hjá fólki áður en kemur til þessara tekjutenginga. En staðreyndin er sú að við höfum hér um bil tvöfaldað framlögin á fjárlögum ríkisins á undanförnum áratug, og þó að við lítum ekki svo langt aftur í tímann, til þess að gera betur þarna og við eigum að vera stolt af því.