150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

viðskiptasamningar við Breta.

[13:55]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er alveg hárrétt að hér er um mjög mikilvæga og mikla hagsmuni að ræða og um það er ekki deilt og heldur ekki um það að ráðuneyti hæstv. ráðherra hefur lagt mikla áherslu á þetta mál að undanförnu, eins og ráðherra rakti. En það sem er kannski áhugavert í þessu væri að fá nánari tíðindi af því hverjar fyrirætlanirnar eru og hvort hugsanlega verði birt viðræðuáætlun og annað af því tagi. Mér er ekki alveg fullkomlega ljóst hvað ráðherra átti við nákvæmlega þegar hann talaði um samstarf við Norðmenn. Mér heyrðist hann fjalla um það á eilítið almennum nótum. Spurningin var sú hvort við myndum í þessu sérstaka tilliti, gerð viðskiptasamnings við Bretland, hafa sérstakt samband við Norðmenn. (Forseti hringir.) Eins var spurning mín sú, svo að ég ítreki hana: Er það mat ráðherra að aðild okkar að Evrópska efnahagssvæðinu setji okkur einhverjar hömlur eða standi (Forseti hringir.) okkur með einhverjum hætti fyrir þrifum við gerð þessa fyrirhugaða samkomulags við Bretland?