viðskiptasamningar við Breta.
Virðulegur forseti. Sá háttur hefur verið hafður á, og á því verður ekki breyting, að upplýsa utanríkismálanefnd reglulega um hvað er í gangi þegar kemur að þessum málum og öðrum mikilvægum utanríkismálum. Á því verður ekki nokkur breyting. Ef menn vilja fara yfir hugsanlegar sviðsmyndir er auðvitað sjálfsagt að gera það bæði í utanríkismálanefnd og sömuleiðis hér í þinginu. Ég hef kallað eftir því að þingmenn fari í sérstaka umræðu við mig um mál sem þeim eru hugleikin því að það að greina hér ýmsustu sviðsmyndir á einni mínútu er svolítið verkefni. Menn þurfa alla vega að vera mjög kjarnyrtir ef þeir ætla að komast yfir það allt saman. Stóra málið er auðvitað þetta: EES-samningurinn hefur reynst okkur mjög vel. Hvernig mál munu þróast nákvæmlega núna við útgöngu Breta á eftir að koma í ljós. En við erum búin að leggja þessa miklu áherslu á útgöngumálin og framtíðarsamninginn (Forseti hringir.) vegna þess að það eru miklir hagsmunir undir. Ég hvet hv. þingmann til að taka þessi mál upp undir þeim liðum sem hann getur ef hann vill fara í nánari umræðu um þau mál og ég skal glaður fara í hana.