150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

rannsókn á brottkasti Kleifabergs.

[14:00]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegur forseti. Fyrst varðandi spurningu hv. þingmanns um það hvort mér hafi verið kunnugt um að einhver rannsókn hafi verið svæfð innan veggja Fiskistofu þá heyri ég hér í fyrsta skipti slíka fullyrðingu og slíka aðdróttun. Mér er ekki kunnugt um nokkuð slíkt, alls ekki. Það má örugglega hafa ýmis orð um þá rannsókn sem hv. þingmaður nefnir. Við erum að vinna á vettvangi ráðuneytisins, undir forystu ákveðinnar verkefnisstjórnar, að tillögugerð varðandi fiskveiðieftirlit á grundvelli þeirrar skýrslu sem Ríkisendurskoðun skilaði þinginu. Sú skýrsla bar með sér að það væri ýmislegt í fiskveiðieftirlitinu, m.a. störfum Fiskistofu og hvernig henni eru sköpuð færi til að sinna sínu eftirliti og fleiri þættir, sem valda því kannski að stjórnsýsla þessara mála hafi ekki verið nægilega góð í öllum tilvikum. Það kann vel að vera að svo sé og mér finnst raunar skýrsla Ríkisendurskoðunar undirstrika það að nokkru leyti.

Ég vænti þess að verkefnisstjórnin og sá samráðsvettvangur sem að baki henni starfar muni skila okkur tillögum um bragarbót á þessum þáttum sem snúa að fiskveiðieftirlitinu, þar með töldum málum sem snerta vinnuferla sem koma við sögu í þessu máli. En um þetta einstaka mál ætla ég ekki að fjölyrða hér í þessum sal og hef ekki nýjar upplýsingar um það.