rannsókn á brottkasti Kleifabergs.
Virðulegi forseti. Ég hlýt að mótmæla því að aðhaldskröfur við gerð fjárlaga, hvort heldur þær eru á Fiskistofu eða aðrar ríkisstofnanir, séu settar fram til höfuðs tilteknum þáttum í starfsemi ríkisstofnana. Svo er ekki í þessu tilfelli Fiskistofu. Það er langur vegur frá. Aðhaldskrafan sem sett hefur verið á Fiskistofa, sem og aðrar stofnanir ríkisins, er almenn og það er síðan einstakra ráðuneyta eða viðkomandi stofnana að útfæra það. Forstöðumenn ríkisstofnana hafa fullt frelsi til að útfæra það hvernig þeir mæta þeirri aðhaldskröfu sem til þeirra er gerð hverju sinni. Og ég ítreka þá skoðun mína að það er ekki ásetningur ráðuneytisins undir minni stjórn að draga úr fiskveiðieftirliti. Þvert á móti ætlast ég til þess að við fáum innan tíðar tillögur verkefnisstjórnar sem á að mæta þeim athugasemdum sem Ríkisendurskoðun gerir í sinni ágætu skýrslu (Forseti hringir.) og ég held að við verðum að bíða þar til við fáum að sjá þær tillögur. En ég nefni það líka að í þeirri skýrslu er sömuleiðis horft til þess með hvaða hætti Fiskistofa starfar.