150. löggjafarþing — 65. fundur,  3. mars 2020.

brottvísun hælisleitenda til Grikklands.

[14:05]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Í þarsíðustu viku áttum við hæstv. dómsmálaráðherra samtal hér um Dyflinnarmál svokölluð, þ.e. mál þar sem Ísland sendir fólk til baka til Evrópulands á grundvelli svokallaðrar Dyflinnarreglugerðar. Í svörum sínum nefndi hæstv. dómsmálaráðherra það að Ísland sendir ekki fólk til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar vegna aðstæðna þar, sem eru ekki bjóðandi. Það sem láðist hins vegar að nefna í þeirri umræðu er að Ísland sendir samt fólk, og jafnvel börn, til Grikklands í sömu eða verri aðstæður, ef það hefur fengið svokallaða stöðu flóttamanns þarlendis. Ég skil vel lagatæknina á bak við þetta, að þetta séu ekki Dyflinnarmál. Það breytir því ekki að aðstæður í Grikklandi eru óboðlegar, sér í lagi fyrir börn, eins og Rauði krossinn hefur ítrekað bent á og hefur ítrekað bent stjórnvöldum á, Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála. Og nú hefur þessi umræða komið upp aftur, að við sendum börn í þessar aðstæður.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort það standi til að breyta þeim forkastanlegu vinnubrögðum, og ef ekki hvað það er nákvæmlega sem hæstv. ráðherra telji að sé boðlegt börnum í Grikklandi þegar þau eru hælisleitendur, við óbreyttar kringumstæður, en sé hins vegar boðlegt þegar þau eru komin með þessa stöðu. Það eru nefnilega mikið til sömu vandamálin eða verri sem fólk lendir í þegar komið er til Grikklands, jafnvel þótt börn séu komin með stöðu flóttamanns. Ég ímynda mér hvernig það sé að vera barn og vera sagt að það sé að fara aftur til Grikklands og það sé allt í lagi vegna þess að það sé með stöðu flóttamanns þar. Þá er það allt í lagi. Þá verði það ekki fyrir aðkasti kerfisins eða fólks á götum úti, og þá fái það allt í einu húsnæði og þurfi ekki að búa á götunni, eða hvað það er sem fólk lendir í þar, í þeim óboðlegu aðstæðum. Það hefur ítrekað verið bent á þetta af hálfu Rauða krossins. Ég sé ekki betur en að UNICEF taki undir að það standist ekki lagakröfur Íslands gagnvart íslenskum barnaverndarlögum og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að senda börn í þessar óboðlegu aðstæður.

Þá vil ég sérstaklega nefna að hér erum við ekki bara að tala um allt fólk, eins og Rauði krossinn bendir á. Við erum að tala um börn, við erum að senda börn til Grikklands. (Forseti hringir.) Hyggst hæstv. dómsmálaráðherra breyta þessu? Í dag?